Gleðiskruddunámskeið fyrir 7-12 ára, 20.-21. apríl 2024

kr.15900

Gleðiskruddunámskeið fyrir börn á aldrinum 7-12 ára
20.-21. apríl 2024.

Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik

Out of stock

Category:

Description

Gleðiskruddunámskeið

HELGARNÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN Á ALDRINUM 7-12 ÁRA.
20.-21. apríl 2024

Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik. 

 

Helstu áherslur eru að efla;

  • Sjálfsþekkingu
  • Bjartsýni og von
  • Styrkleika
  • Trú á eigin getu
  • Gróskuhugarfar
  • Núvitund

 

Ávinningur: 

Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra.

Námsgögn:

Allir þátttakendur fá vinnuhefti sem byggt er á dagbókinni Gleðiskruddunni.  

Skipulag: 

Námskeiðið er kennt laugardag og sunnudag og varir í 2 klst í senn.

Dagsetningar og tími :

20.-21. apríl
kl 10-12 

Verð:
15.900 kr. 

Staður: 

Námskeiðið fer fram í Tunglið viðburðarsal,
Lækjargötu 2, 101 Reykjavík. 

Skráning:

Skráning og greiðsla fer fram í vefverslun.

Taka skal fram í athugasemd:

  • Nafn og kennitölu þátttakanda

 

Hlökkum til að taka vel á móti ykkur