Gleðiskruddunámskeið fyrir 10-12 ára, 18.-19. nóvember 2023

kr.15900

Gleðiskruddunámskeið fyrir börn á aldrinum 10-12 ára.
18.-19. nóvember


Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik.

Out of stock

Category:

Description

Gleðiskruddunámskeið

HELGARNÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN Á ALDRINUM 10-12 ÁRA.
18.-19. nóvember

Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik. 

 

Helstu áherslur eru að efla;

  • Sjálfsþekkingu
  • Bjartsýni og von
  • Styrkleika
  • Trú á eigin getu
  • Gróskuhugarfar
  • Núvitund

 

Ávinningur: 

Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra.

Námsgögn:

Allir þátttakendur fá vinnuhefti sem byggt er á dagbókinni Gleðiskruddunni.  

Skipulag: 

Námskeiðið er kennt laugardag og sunnudag og varir í 2 klst í senn.

Dagsetningar og tími :

18.-19. nóvember

Hópur 1 (10-12 ára) : kl 13-15 

Verð:
15.900 kr. 

Staður: 

Námskeiðið fer fram í sal í Langholtskirkju.

Skráning:

Skráning og greiðsla fer fram í vefverslun.

Taka skal fram í athugasemd:

  • Nafn og kennitölu þátttakanda

 

Hlökkum til að taka vel á móti ykkur.