Description
8 vikna námskeið fyrir börn á aldrinum 7-12 ára.
Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á 8 vikna námskeiðinu er lögð frekari áhersla á jákvæð inngrip og farið er dýpra í hvert og eitt þema sem kynnt var á helgarnámskeiðinu. Einnig lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik.
Á þessu námskeiði er kafað dýpra í hvert og eitt þema en á helgarnámskeiðum Gleðiskruddunnar og fá börnin léttar og skemmtilegar æfingar til að gera heima.
Helstu áherslur eru að efla;
- Sjálfsþekkingu
- Bjartsýni og von
- Styrkleika
- Trú á eigin getu
- Gróskuhugarfar
- Þakklæti
- Núvitund
Ávinningur:
Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra.
Námsgögn:
Allir þátttakendur fá vinnuhefti sem byggt er á dagbókinni Gleðiskruddunni.
Skipulag:
Námskeiðið er kennt á þriðjudögum í 8 skipti, 1 klst í senn.
Dagsetningar í boði:
Námskeiðið hefst þriðjudaginn 4. október. Verður kennt á eftirfarandi dögum:
- 4. október
- 11. október
- 18. október
- 1. nóvember
- 8. nóvember
- 15. nóvember
- 22. nóvember
- 29. nóvember
Tími:
Kl. 16.30-17.30
Verð:
36.900
Staður:
Námskeiðið fer fram í Vellíðanarsetrinu, Urriðaholtsstræti 18.
Skráning:
Skráning og greiðsla fer fram í hér
Taka skal fram í athugasemd:
- Nafn og kennitölu þátttakanda
Athugið: Námskeiðið hentar einnig þeim sem hafa áður setið helgarnámskeið Gleðiskruddunnar en það er þó ekki skylda.
Hlökkum til að taka vel á móti ykkur í Vellíðanarsetrinu.