Sumarnámskeið fyrir 8-12 ára, 18.-21. júní kl. 9-12

kr.22500

Sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum 8-12 ára.
18.-21.  júní, kl.9-12

Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik.

10 in stock

Category:

Description

Sumarnámskeið 2024

Gleðiskruddan verður með námskeið í sumar fyrir börn á aldrinum 8-12 ára.

Námskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan.

Á Gleðiskruddunámskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik. Ef að veður leyfir förum við jafnvel eitthvað út í náttúruna. 

 

Helstu áherslur eru að efla;

  • Sjálfsþekkingu
  • Bjartsýni og von
  • Styrkleika
  • Trú á eigin getu
  • Gróskuhugarfar
  • Jákvæðar tilfinningar
  • Núvitund

 

Ávinningur: 

Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra.

 

Námsgögn:

Allir þátttakendur fá vinnuhefti sem byggt er á dagbókinni Gleðiskruddunni.  

 

Skipulag: 

Námskeiðið er kennt virka daga og varir í 3 klst í senn, frá 9-12 

 

Dagsetningar:

18.-21. júní


Verð: 

22.500 kr

 

Staður: 

Námskeiðið fer fram í Dalskóla, Úlfarsbraut 122-124, 113 Reykjavík.

 

Skráning og skilmálar: 

Skráning og greiðsla fer fram í vefverslun.

 

Hægt er að fá endurgreitt ef farið er fram á endurgreiðslu viku áður en námskeiðið fer af stað. Eftir að námskeiðið hefst áskilur Gleðiskruddan ehf. Að endurgreiða ekki námskeiðsgjald ef kaupandi ákveður að hætta á námskeiði. 

 

Taka skal fram í athugasemd:  

  • Nafn og kennitölu þátttakanda

 

Hlökkum til að taka vel á móti ykkur í Dalskóla.