Gleðiskruddan – jákvæð sálfræði og gleðiverkfæri sem nýtast í uppeldi
Námskeið fyrir foreldra um jákvæða sálfræði og jákvæð inngrip í uppeldi og daglegu lífi.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Jákvæða sálfræði
- Jákvæð inngrip
- Gleðiverkfæri
- Bjartsýni
- Trú á eigin getu
- Styrkleika
- Gróskuhugarfar
- Þrjá góða hluti
Ávinningur:
Það er mikilvægt að foreldrar/forráðamenn fái tækifæri á því að kynnast jákvæðri sálfræði og hvernig nýta megi jákvæð inngrip í uppeldi og daglegu lífi – svokölluð gleðiverkfæri.
Dagsetningar í boði:
Næsta námskeið er þriðjudaginn 27. ágúst 2024
Tímasetning: 19:30-21.30
Verð: 6.900 kr
Staðsetning: Salurinn fyrir ofan Ísbúðina Háleiti. Gengið er í gegnum ísbúðina og upp á aðra hæð.
Skráning: Skráning og greiðsla fer fram í vefverslun.
Hlökkum til að taka vel á móti ykkur.
„Hamingjan felst í hugarfari þínu og hvernig þú lítur á hlutina.“
-Roy T. Bennett