HELGARNÁMSKEIÐ Í KAUPMANNAHÖFN FYRIR BÖRN Á ALDRINUM 7-12 ÁRA.

kr.24900

Gleðiskruddunámskeið fyrir börn á aldrinum 7-12 ára
18.-19. mars. 

*Athugið innifalið í verðinu er Gleðiskruddan – andvirði 4990 kr.

Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik.

Out of stock

Category:

Description

Gleðiskruddunámskeið

HELGARNÁMSKEIÐ Í KAUPMANNAHÖFN FYRIR BÖRN Á ALDRINUM 7-12 ÁRA.

18.-19. mars 2023

*Athugið innifalið í verðinu er eintak af Gleðiskruddunni dagbók fyrir börn og ungmenni sem eflir sjálfsþekkingu og eykur vellíðan. 

 

Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik.

 

Helstu áherslur eru að efla;

  • Sjálfsþekkingu
  • Bjartsýni og von
  • Styrkleika
  • Trú á eigin getu
  • Gróskuhugarfar
  • Núvitund

 

Ávinningur: 

Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra.

Námsgögn:

Allir þátttakendur fá eintak af Gleðiskruddunni og vinnuhefti sem unnið er með á námskeiðinu.

Skipulag: 

Námskeiðið er kennt laugardag og sunnudag og varir í 2 klst í senn.

Dagsetningar og tími :

18.-19. mars
7-12 ára: 14-16 (lau) & 10-12 ( SUN)


Verð:

24.900 kr (1300 dkkr)


Staður: 

Námskeiðið fer fram í Jónshúsi, Øster Voldgade 12, 1350 Kaupmannahöfn


Skráning:

Skráning og greiðsla fer fram í vefverslun.

Taka skal fram í athugasemd:

  • Fullt nafn og kennitölu þátttakanda

 

Skilmálar: 

Ef lágmarksþátttaka næst ekki 2 vikum áður en námskeiðið hefst áskilur Gleðiskruddan ehf. sér að fella niður námskeið eða færa námskeiðið á aðra dagsetningu. 

 

Hlökkum til að taka vel á móti ykkur í Jónshúsi.