Description
Gleðiskruddunámskeið
Aukanámskeið fyrir börn á aldrinum 7-12 ára.
13. mars
Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik.
Helstu áherslur eru að efla;
- Sjálfsþekkingu
- Bjartsýni og von
- Styrkleika
- Trú á eigin getu
- Gróskuhugarfar
- Núvitund
Ávinningur:
Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra.
Námsgögn:
Allir þátttakendur fá vinnuhefti sem byggt er á dagbókinni Gleðiskruddunni.
Skipulag:
Námskeiðið er kennt sunnudaginn 13. mars. Þar sem þetta námskeið verður haldið með öðruvísi sniði þá munum við bjóða upp á pizzu og taka smá pásu í hádeginu.
Dagsetningar og tími :
13. mars
kl: 10-14:30
Verð:
15.900 kr.
Staður:
Námskeiðið fer fram í Vellíðanarsetrinu, Urriðaholtsstræti 18.
Skráning:
Skráning og greiðsla fer fram í vefverslun.
Taka skal fram í athugasemd:
- Nafn og kennitölu þátttakanda
Hlökkum til að taka vel á móti ykkur í Vellíðanarsetrinu.