Gleðiskruddunámskeið fyrir 7-9 ára, 5.-6. febrúar

kr.15900

Gleðiskruddunámskeið fyrir börn á aldrinum 7-9 ára (árgangur 2013 – 2015).
5.-6. febrúar. 


Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik. Ef að veður leyfir förum við jafnvel eitthvað út í náttúruna. 

Out of stock

Category:

Description

Gleðiskruddunámskeið

Helgarnámskeið fyrir börn á aldrinum 7-9 ára (árgangur 2013 – 2015).
5.-6. febrúar. 


Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik. Ef að veður leyfir förum við jafnvel eitthvað út í náttúruna. 

 

Helstu áherslur eru að efla;

  • Sjálfsþekkingu
  • Bjartsýni og von
  • Styrkleika
  • Trú á eigin getu
  • Gróskuhugarfar
  • Núvitund

 

Ávinningur: 

Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra.

Námsgögn:

Allir þátttakendur fá vinnuhefti sem byggt er á dagbókinni Gleðiskruddunni.  

Skipulag: 

Námskeiðið er kennt laugardag og sunnudag og varir í 2 klst í senn.

Dagsetningar og tími :

5.-6. febrúar

Hópur 1 (7-9 ára) : kl 10-12

Verð:
15.900 kr. 

Staður: 

Námskeiðið fer fram í Vellíðanarsetrinu, Urriðaholtsstræti 18.

Skráning:

Skráning og greiðsla fer fram í vefverslun.

Taka skal fram í athugasemd:

  • Nafn og kennitölu þátttakanda

 

Hlökkum til að taka vel á móti ykkur í Vellíðanarsetrinu.