Gleðiskruddunámskeið fyrir 13-15 ára, 17. september – Akureyri

kr.15900

Gleðiskruddunámskeið fyrir börn á aldrinum 13-15 ára
17. september


Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að blanda saman fræðslu og gleði. Kynnt verða til sögunnar svokölluð gleðiverkfæri sem nýtast börnum og ungmennum til að takast á við áskoranir í daglegu lífi. 

Out of stock

Category:

Description

Gleðiskruddunámskeið

Helgarnámskeið 13-15 ára. 17. september

Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að blanda saman fræðslu og gleði. Kynnt verða til sögunnar svokölluð gleðiverkfæri sem nýtast börnum og ungmennum til að takast á við áskoranir í daglegu lífi. 

Helstu áherslur eru að efla;

  • Jákvæð samskipti
  • Sjálfsþekkingu
  • Bjartsýni og von
  • Styrkleika
  • Trú á eigin getu
  • Gróskuhugarfar
  • Markmið og markmiðasetning

 

Ávinningur: 

Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra.

Námsgögn:

Allir þátttakendur fá vinnuhefti sem byggt er á dagbókinni Gleðiskruddunni.  

Skipulag: 

Námskeiðið er kennt laugardaginn 17. september og varir í 4 klst. Boðið verður upp á pizzur.  

Dagsetningar og tími :

17. september
16:00-20:00

 

Verð:

15.900 kr. 

Staður: 

Námskeiðið fer fram í Naustaskóla, v/Hólmatún, 600 Akureyri.

Skráning:

Skráning og greiðsla fer fram í vefverslun.

Taka skal fram í athugasemd:

  • Nafn og kennitölu þátttakanda

 

Hlökkum til að taka vel á móti ykkur á Akureyri.