Gleðiskruddunámskeið + foreldrafyrirlestur, 7-12 ára, 7. janúar 2023 *Uppsveitir*

kr.21900

Gleðiskruddunámskeið fyrir börn á aldrinum 7-12 ára
7. janúar. Ásamt fyrirlestri fyrir foreldra/forráðamenn hvernig nýta megi jákvæða sálfræði áfram í daglegu lífi & uppeldi. 

Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik. 

Out of stock

Category:

Description

Gleðiskruddunámskeið

HELGARNÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN Á ALDRINUM 7-12 ÁRA. 7. janúar 2023

                                                &

FYRIRLESTUR FYRIR FORELDRA/FORRÁÐAMENN EFTIR NÁMSKEIÐ HVERNIG NÝTA MEGI JÁKVÆÐA SÁLFRÆÐI ÁFRAM Í DAGLEGU LÍFI & UPPELDI.

 

Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik. 

 

Helstu áherslur eru að efla;

  • Sjálfsþekkingu
  • Bjartsýni og von
  • Styrkleika
  • Trú á eigin getu
  • Gróskuhugarfar
  • Núvitund

 

Ávinningur: 

Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra.

Námsgögn:

Allir þátttakendur fá vinnuhefti sem byggt er á dagbókinni Gleðiskruddunni.  

Skipulag: 

Námskeiðið varir í 4 klst, að því loknu verður foreldrafyrirlestur. 

Dagsetningar og tími :

7. janúar

kl 10.00-14.00

Verð:

21.900 kr. 

Staðsetning: 

Félagsheimilið Aratunga, Reykholt, Bláskógabyggð

Skráning:

Skráning og greiðsla fer fram í vefverslun.

Taka skal fram í athugasemd:

  • Nafn og kennitölu þátttakanda

 

Hlökkum til að taka vel á móti ykkur í Reykholti.