Gleðiskruddunámskeið 10-12 ára, 8.-9. október *SNÆFELLSBÆR*

kr.15900

Gleðiskruddunámskeið fyrir börn á aldrinum 10-12  ára. 8.-9. október 2022 *SNÆFELLSBÆR*

Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik. Ef að veður leyfir förum við jafnvel eitthvað út í náttúruna.

Out of stock

Category:

Description

Gleðiskruddunámskeið

Helgarnámskeið fyrir börn á aldrinum 10-12 ára.
8.-9. október 2022 


Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik. Ef að veður leyfir förum við jafnvel eitthvað út í náttúruna. 

 

Helstu áherslur eru að efla;

  • Sjálfsþekkingu
  • Bjartsýni og von
  • Styrkleika
  • Trú á eigin getu
  • Gróskuhugarfar
  • Núvitund

 

Ávinningur: 

Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra.

Námsgögn:

Allir þátttakendur fá vinnuhefti sem byggt er á dagbókinni Gleðiskruddunni.  

Skipulag: 

Námskeiðið er kennt laugardag og sunnudag og varir í 2 klst í senn. 

Dagsetningar og tími :

8.-9. október
kl. 12:30-14:30 

Verð:
15.900 kr. 

Staðsetning: 

Námskeiðið fer fram í Grunnskóla Snæfellsbæjar, Ennisbraut 11, 355 Snæfellsbæ. 

Skráning:

Skráning og greiðsla fer fram í vefverslun.

Taka skal fram í athugasemd:

  • Nafn og kennitölu þátttakanda

 

Hlökkum til að taka vel á móti ykkur í Snæfellsbæ.