Lýsing
8 vikna Gleðiskruddunámskeið fyrir börn á aldrinum 7-12 ára.
Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á framhaldsnámskeiðinu er lögð frekari áhersla á jákvæð inngrip og farið er dýpra í hvert og eitt þema sem kynnt var á grunnnámskeiðinu. Einnig lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik. Ef að veður leyfir förum við jafnvel eitthvað út í náttúruna.
Á þessu námskeiði er kafað dýpra í hvert og eitt þema en á helgarnámskeiðum Gleðiskruddunnar og fá börnin léttar og skemmtilegar æfingar til að gera heima.
Helstu áherslur eru að efla;
- Sjálfsþekkingu
- Bjartsýni og von
- Styrkleika
- Trú á eigin getu
- Gróskuhugarfar
- Þakklæti
- Núvitund
Ávinningur:
Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra.
Námsgögn:
Allir þátttakendur fá vinnuhefti sem byggt er á dagbókinni Gleðiskruddunni.
Skipulag:
Námskeiðið er kennt á fimmtudögum í 8 skipti, 1 klst í senn.
Dagsetningar í boði:
Námskeiðið hefst fimmtudaginn 10. febrúar 2022. Verður kennt á eftirfarandi dögum:
- 10. febrúar
- 3. mars
- 10. mars
- 17. mars
- 24. mars
- 31. mars
- 7. apríl
- 28. apríl
Tími:
17.00-18.00
Verð:
34.900
Staður:
Námskeiðið fer fram í Vellíðanarsetrinu, Urriðaholtsstræti 18.
Skráning:
Skráning og greiðsla fer fram í hér
Taka skal fram í athugasemd:
- Nafn og kennitölu þátttakanda
Athugið: Námskeiðið hentar einnig þeim sem hafa áður setið helgarnámskeið Gleðiskruddunnar en það er þó ekki skylda.
Hlökkum til að taka vel á móti ykkur í Vellíðanarsetrinu.